Nautahakk með eplum!

Bragðgóður réttur sem öllum þykir góður!

 

(Fyrir 4)

 

Nautahakk með eplum  -  bragðgóður ofnréttur sem öllum þykir góður                       

600 gr kjöthakk ( Gott að blanda saman Lúxus hakki og svínahakki)
 3-4 epli
1 stk laukur
3 dl laukur
4  msk hveiti
2 egg
2 msk brauðrasp
Salt
Pipar
1 dl vatn
1 dl tómatsósa
1 eggjahvíta
Smjör
Brauðrasp

 

Afhýðið eplin og skerið í a.m.k. 2 sm þykkar sneiðar (átta sneiðar), fjarlægið kjarna.

Raðið eplasneiðunum í smurt eldfast mót. 

Saxið laukinn og brúnið í smjöri.

Blandið saman hveiti, brauðraspi, eggjum, lauk, salti og pipar og að lokum mjólk og hrærið vel saman við hakkið. Búið til átta bollur og setjið eina bollu á hverja eplasneið.

Blandið saman vatni og tómatsósu.

Penslið bollurnar með eggjahvítu og stráið brauðraspi yfir.
Bræðið örlítið smjör og hellið yfir réttinn.

Bakið í 175 °C heitum ofni í 40 mínútur og hellið tómatsósublöndunni yfir réttinn í smáskömmtum á meðan hann bakast,  á u.þ.b 10 mínútna fresti.

Gott er að bera réttinn fram með kartöflustöppu.


Verði ykkur að góðu!

 

tilbaka
Apycom jQuery Menus