Kálfakjöt Parmiggio!

 

 

3 matskeiðar ólífuolía
1 laukur, smátt saxaður
3 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 dós niðursoðnir hakkaðir tómatar
1 glas rauðvín (má sleppa)
1 dós niðursoðin tómatsósa
1/2 teskeið þurrkað timian
400-500 gr kálfakjöt í þunnum sneiðum
1 egg
1/3 bolli parmiggiano reggiano, rifinn
1/3 bolli brauðrasp
1 kúla ferskur mozzarella ostur, skorinn í sneiðar
Salt og pipar

 

Steikið lauk og hvítlauk á pönnu, bætið svo tómötunum og salti og pipar við
og sjóðið niður í 10 mínútur. Bætið tómatsósunni rauðvíninu (ef vill) og
timianinu saman við og sjóðið áfram í 20 mínútur.
Hitið ofninn í 200 gráður.


Á meðan sósan sýður, undirbúið kjötið:
hrærið egg á diski og blandið saman brauðraspi og parmiggiano osti á annan
disk. Skiljið eftir svolítið af ostinum. Veltið kjötinu upp úr egginu og
brauðmylsnunni og brúnið létt á hvorri hlið.
Raðið sneiðunum á eldfast fat, raðið mozzarellaostinum ofan á og hellið
sósunni yfir. Stráið afgangnum af parmiggiano ostinum yfir.
Bakið í 30 mínútur.
Gott að bera fram með ofnbökuðum kartöflu og fersku salati.

 


Verði ykkur að góðu!

 

tilbaka
Apycom jQuery Menus