Kjötbollur með súrsætri sósu!
Bollur
500 gr nautahakk1 egg
100 gr ritzkex mulið
1/2-1 pakki púrrulauksúpa (ég nota 1/2 pakka)
Súrsæt sósa
1,25 dl sykur1,25 dl vatn
0,6 dl borðedik
1 msk sojasósa
3 msk tómatsósa
1 tsk salt
sósujafnari
Blandið saman efnunum í kjötbollurnar og mótið litlar bollur með höndunum.
Steikið á pönnu við meðalhita, eða bakið í ofni við 160° blástur í 15 mín.
Setjið hráefnið í sósuna saman í pott og látið suðuna koma upp.
Þykkið með sósujafnara.
Einfalda leiðin er að kaupa sósu út í búð.
Blandið kjötbollunum og sósunni saman.
Gott er að hafa hrísgrjón, ferskt grænmeti og sojasósu með.
Verði ykkur að góðu!
