Íslensk kjötsúpa!
1 kg Gott súpukjöt frá Kjöthöllinni
1,8 l Vatn
1 stk Laukur, saxaður
500 g Rófur
250 g Gulrætur
100 g Hvítkál
1 dl Hrísgrjón
2 msk Hafragrjón
Salt og pipar eftir smekk
Kjötið er sett í pott, vatninu hellt yfir og hitað að suðu. Froðu fleytt ofan af.
Söxuðum lauk hrært saman við og soðið í um 40 mínútur.
Rófum, gulrótum, hvítkáli og hrísgrjónum bætt út í og soðið í 15 mínútur til viðbótar.
Hafragrjón sett út í og soðið í um 5 mínútur, eða þar til allt grænmetið er meyrt.
Smakkað og bragðbætt með salti og pipar, ef þarf.
Kjötið er ýmist borið fram í súpunni eða með henni á sérstöku fati.
Verði ykkur að góðu!
