Ljúffengt lasagna!

(Fyrir 6)

 

400 gr lasagna blöð

 

Kjötsósa:
500 gr. Lúxus nautahakk (4% fituinnihald)
2-3 msk olía
1 stór fínt skorinn laukur
1-2 pressaður (eða saxaður) hvítlaukur
½ dós niðursoðnir tómatar
1 lítil dós tómatkraftur
2 dl kjötkraftur  (1 tsk kjötkraftur leystur upp í 2 dl af vatni)
1 – 2  tsk salt
Pipar
½ tsk ítalskt krydd
½ tsk steinselja

 

 

Brúnið lauk og hvítlauk í olíu, bætið hakkinu út í og brúnið.

Setjið tómata, tómatkraft og kjötkraft saman við, ásamt salti, pipar, ítölsku kryddi  og steinselju.

Látið krauma undir loki við vægan hita í ½ klst.

 

 

Ostasósa:
30 gr. Smör eða smjörlíki
3 msk hveiti
4-5 dl mjólk
½ tsk salt
Örlítill pipar
½ tsk múskat
50-100 gr rifinn óðalsostur


Bræðið smjör og hrærið hveiti út í.

Hellið mjólkinni smátt og smátt saman við og hrærið vel í.

Þegar allri mjólkinni hefur verið bætt út í og sósan er orðin hæfilega þunn, kryddið þá og hrærið ostinum saman við.

Smyrjið eldfast fat og hellið ostasósu í botninn.

Setjið lasagna blöð þar ofan á, síðan kjötsósu, þá ostasósu og loks lasagna blöð.

Endurtakið þetta tvisvar eða þrisvar (eftir stærð fats)
Hellið afganginum af ostasósunni yfir efsta lagið af lasagna blöðunum.

Þekið blöðin vel og stráið rifnum osti yfir ásamt nokkrum smjörklípum.

Bakið við 250°C í u.þ.b. ½ klst.

Berið fram með brauði og salati.


Verði ykkur að góðu!

 

tilbaka
Apycom jQuery Menus