Ofnbakað nautahakk með kartöflum!
400 gr Lúxus nautahakk (4% fituinnihald)
½ kg kartöflur
2 sneiðar franskbrauð
3 msk mjólk
1 laukur
Salt
Pipar
1 stk paprika
Matarolía eða smjörlíki til steikingar
Sósa:
40 gr smjör eða smjörlíki
4 msk hveiti
1 ½ dl kjötsoð (vatn + 2 teningar)
1 lítill laukur
2 dl sýrður rjómi (1 box)
Salt
Rifinn ostur
2 msk brauðrasp
Sjóðið kartöflunar í léttsöltu vatni. Bleytið brauðið í mjólkinni.
Saxið laukinn smátt og blandið brauði og lauk saman við nautahakkið.
Kryddið með salti, pipar og papriku.
Mótið átta buff úr hakkinu og brúnið snöggt á pönnu í smjörlíki eða olíu.
Raðið þeim fyrir miðju í smurt eldfast mót.
Afhýðið soðnu kartöflurnar og skerið í sneiðar. Raðið þeim í kringum kjötið.
Sósa:
Bræðið smjör eða smjörlíki í potti, bætið hveitinu í og loks kjötsoði í skömmtum.Afhýðið laukinn og rífið með rifjárni. Bætið honum út í sósuna.
Takið sósuna af hellunni og bætið sýrða rjómanum út í, bragðbætið með salti ef með þarf.
Sósan er fremur ljós og mætti skerpa litinn með sósulit.
Hellið sósunni yfir kjötið og kartöflurnar. Stráið osti og loks brauðraspi yfir.
Bakið í 175°C heitum ofni í 15 mínútur.
Berið fram með fersku salati.
Verði ykkur að góðu!
