Nautalund - Wellington!

 

Ekta Wellington Nautalund - áratugagömul uppskrift! :)

Fyrir 3-4

----------------------------------------------------------------- 

 

500 gr. nautalund

salt og nýmalaður pipar

500 gr. smjördeig

200 gr. sveppir

2 laukar

100 gr. skinka

100 gr. smjör

1/2 dl vatn + 1 msk kjötkraftur

Brauðmylsna (helst franksbrauð)

1 msk. söxuð steinselja

 

 

1. Saxið sveppi, lauk og skinku smátt og steikið í smjörinu ásamt steinseljunni.

 

2. Kryddið lundina með salti og nýmöluðum pipar og brúnið á pönnu rétt til að loka kjötinu.

 

3. Fletjið smjördegið út í ca. 1/2 cm þykka köku.

Smyrjið fyllingunni á deigið, leggið lundina á fyllinguna og lokið deiginu utan um allt saman.

 

4. Þrýstið brúnum deigsins saman með gaffli, skreytið með afskurðinum og penslið deigið með þeyttu eggi.

 

5. Bakið í 25 mín. í 150°C heitum ofni.

Rosalega gott að bera fram með bernése eða brúnni sósu, bökuðum kartöflum og grænmeti.

 

 

tilbaka
Apycom jQuery Menus