Verslanir Kjöthallarinnar
Verslanir Kjöthallarinnar eru sérverslanir með kjötvörur með ferskleika, gæði og persónulega þjónustu í fyrirrúmi. Sérpantanir viðskiptavina eru okkur ánægjuefni og við gerum okkar besta til að sinna þeim með skömmum fyrirvara.
Mikil áhersla er lögð á ferskt og gott íslenskt gæðahráefni í nauta-, lamba- ,svína- og kálfakjöti. Í kjötborðinu er að finna úrval af ferskri kjötvöru, hið vinsæla lúxus nautahakk, úrval af hakkabuffum, Red Roy hamborgara í nokkrum stærðum, safaríkar og meyrnaðar Red Roy nautasteikur, úrval af lambakjöti og margt fleira spennandi.
Við bjóðum uppá sparkassa sem eru magninnkaup fyrir heimili í nauta og svínakjöti á hagstæðu verði. Við sérpökkum kjötinu fyrir hvern og einn viðskiptavin og panta þarf kassana með a.m.k dagsfyrirvara. Hagstætt verð er einnig á lambaskrokkum í 1/1 og ½ sem eru sagaðir niður að óskum viðskiptavina. Hægt er að fá tilboð í kjötvörur fyrir stærri veislur og viðburði.
Innra eftirlit kjötvinnslu og verslana tryggir að kjötið sé ávallt mátulega hangið við rétt kulda og rakastig.
Tilboð í verslunum Kjöthallarinnar
